Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1432, 153. löggjafarþing 645. mál: atvinnuréttindi útlendinga (sérhæfð þekking).
Lög nr. 17 4. apríl 2023.

Lög um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002 (sérhæfð þekking).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
  1. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
  2.      Ráðherra er heimilt að birta í reglugerð lista yfir þau störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi. Ráðherra skal að minnsta kosti á tólf mánaða fresti óska eftir tillögum að breytingum á framangreindri reglugerð frá hlutaðeigandi stofnunum og hagsmunasamtökum. Vinnumálastofnun er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi og birt hefur verið í reglugerð, sbr. 1. málsl. Vinnumálastofnun óskar staðfestingar á sérhæfðri þekkingu viðkomandi útlendings í samræmi við íslenskar reglur telji stofnunin slíkt nauðsynlegt. Að öðru leyti gildir ákvæði 1. mgr.
  3. Á eftir orðunum „krefst háskólamenntunar“ í 3. mgr. kemur: eða starfs sem krefst sérhæfðrar þekkingar, sbr. 3. mgr.
  4. Á eftir 2. málsl. 5. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi leyfið verið veitt á grundvelli 3. mgr. er heimilt að framlengja það um allt að tvö ár þrátt fyrir að það starf sem um ræðir hafi verið fellt brott af lista yfir störf sem falla undir 3. mgr. samkvæmt gildandi reglugerð hverju sinni.


2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 28. mars 2023.